vorið og nóttin eru þarna úti saman að gera eitthvað við hvort annað
og þau magna upp hausverkinn minn
hausverkinn hjá konunni einstaklingnum konunni einstaklingnum konunni einstaklingnum jájájá ok allt í lagi
vornæturhausverkurinn
næturvorshjartaverkurinn
hjá einstaklingskonunni eða kveneinstaklingnum
og parkódín forte að gera eitthvað við þetta allt saman
límir sig við mig og leggst slepjulega yfir líkama minn

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal