sveimérþá
það er erfitt að vera til
og draga þennan blessaða anda fjanda
ég er alveg dauðþreytt
og meira en það
komin með upp í kok af þreytu
og fáránleika
en hva
jájá dál. roð. í koki. lungu: 0 = virosis
segjum doxytab eða bara slepptu þessu. það væri öllu betra.
ekkert diazepam í boði. ekkert valíum hér góða. finndu bara sönginn í þínum helvítis fugli. bölvað tíst. ekki hjálpa ég þér út úr þessu rugli. þú komst þér hingað og getur séð um restina sjálf. pulsurnar orðnar kaldar og grænar af öfund í tanað beib. en taktu í taktu í elskan á meðan færi gefst. ástin usssss. ég skal engum segja. ussssss ég lofa. engum. ekki einu sinni sjálfri mér. hún sjálf ég tek ekki lengur við slíkum skilaboðum. neibb. engar unnar kjötvörur takk.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal