ætti ég að klippa mig?

haaaaaaaa

hættu að vaska upp og svaraðu ástin mín

og það mætti halda að þú værir ástfangin stelpurófa

hvað er það

svona eins og þú ert núna leiftrandi
jafnvel nötrandi af ánægju spenningi og væntingu

greddu greddu greddu

á ég að láta klippa mig?

haaaaaa

hættu að snúa upp á geirvörturnar og horfðu á mig

það mætti halda að þú værir endurkomin með svarta brjóstahaldara og krumma hangandi á snúrunni og jafnvel múmíur syndandi í vaskinum

hví

það er harðfiskurinn í ísskápnum
gefðu mér harðfisk og fjör og farðu svo að sofa

Ummæli

krumma sagði…
klippa eða klippa ekki, what´s at risk here, sítt eða stutt, ljóst eða dökkt, styttur eða pottlok, satt að segja verður fíuþokki ekki smættaður niður með skærum, hann er nefninlega í augunum, hef sagt það áður og segi það aftur að ef ég væri strákur fengi ég standpínu til akureyrar við að horfa í augun þín
krumma sagði…
hmmmm...eða ertu kannski ekkert að tala við mig eða hvað
Fía Fender sagði…
óh ástin mín

sendi þér kyngimagnaðan kynþokka

lekandi upp og niður allar götur

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal