vildi að ég gæti höggvið hausinn af einhverjum núna
en það má víst ekki
of mikið blóð
of mikið ofbeldi
það er ekki vel séð
börnin mín yrðu örugglega ekkert ánægð með mig svona þegar fram líða stundir
hvaaa... á ég þá bara að bæla drápseðli mitt niður og þróa með mér grænleitt myglumynstur á yfirborði húðarinnar?
jájá ég nenni því ekki bara. þetta sem þú ert að hugsa. ekki að ganga upp á helvítis fjall eða fara í sjósund. svo er ég líka lasin. enn með minn voríska hausverk og dofin í liðum og landi míns eigin hjarta. kannski eru ræturnar að losna. það væri þá bara ágætt. losa um þessa flókabendu sem ég er ofin úr.
ég nenni ekkert að vera alltaf svona fáránlega jákvæð. neibb. held líka að það væri of veikt að vera jákvætt gangandi drápseðli. já alveg rosalega sikk. sick and toy.

taktu bensín elskan það er allt bannað hvort sem er
taktu bensín elskan

það er líka það sem er
þegar allt kemur til alls. og ég sendi út beiðni strax. skriflega elskan skriflega.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal