pabbi minn yndislegur steikti fyrir mig nautakjöt og kom með framreitt á disk til lúnu litlu dóttur sinnar sem er svo dugleg að pakka og mála og anda fallega og mikið og biðja bænirnar sínar og svo er litla dóttirin líka tveggja barna móðir í sól og hún elskar mikið og hún er líka svoldið kvíðin og svo er litla hjartað hennar svo viðkvæmt og þá er gott að borða rautt nautakjöt sem pabbi bestaskinn hefur eldað og keyrt með innpakkað í ál(fa)pappír með kartöflum og sósu og salati og góðgæti ásamt fleiri kössum.

þetta er fallegur dagur.

best að pakka meira og meira og meira.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal