Færslur

Sýnir færslur frá janúar, 2009
Og hér er fín hugleiðing um kreppu og vefjagigt - nokkuð góð samlíking þar á ferð.
Frá The Guardian í dag: "If she is instated by the end of the week, as seems likely, she will also be Iceland's first female prime minister. Iceland has previously had a female president, Vigdís Finnbogadóttir, who was elected in 1980. She served until 1996. According to Samtokin 78, Johanna will be the first gay prime minister anywhere. After four months of disaster, it seems Iceland finally has something to be proud of again."
Frá Washington Post í gær: "The politicians never think about the country, about the ordinary people," said Nikolai Tikhomirov, 23, an electronics salesman who participated in the Jan. 13 protest in Riga. "They only think of themselves." Days after the riot, a demonstration by 7,000 protesters in neighboring Lithuania turned violent, leading police to respond with rubber bullets. Fifteen people were injured. Smaller protests and clashes have erupted in Bulgaria, the Czech Republic and Hungary, following weeks of street violence in Greece last month. On Thursday, police in Iceland used tear gas for the first time in half a century to disperse a crowd of 2,000 protesting outside Parliament in Reykjavik. The next day, Prime Minister Geir Haarde agreed to call early elections and said he would step down. Dominique Strauss-Kahn, head of the International Monetary Fund, said the financial crisis could cause further turmoil "almost everywhere," listing Latvia, Hu
SKOHH alvöru eclipse í gangi - jáh sko ég sagði það
já já já - og minni svo bara á myrkva himintungla á morgun....
jæja þá er einn ráðherra búinn að segja af sér!!!
og hér er örlítið frá meistara lutin: "Eclipses are always a test of faith as once cycle ends and a brand new one begins...." hmmm - spennnandi ó já
"og veistu hvað mamma ég var að segja fóstrunni ha að ríkisstjórn ha að hann ríkisstjórn á að hætta bara hættu þessu. farðu ríkisstjórn"
Leikhúsið var spreyjað bleikt og grænt og það var komið myrkur en sprengingarnar lýstu mér leið og söngurinn ómaði í takt við hjartað mitt sem sló nokkuð óreglulega í upplausn með hálkublettum hér og þar
Mynd
og hér sit ég fyrir framan imbann heima með veiku stelpuna mína og æpi með hinum: VANHÆF RÍKISSTJÓRN!!! VANHÆF RÍKISSTJÓRN..... mér líst vel á þessi mótmæli séð héðan úr sófanum í stofunni -
þessa dagana langar mig nær eingöngu að horfa á bíómyndir hverja myndina á eftir annarri
Mynd
Áhugaverð grein um þann hrylling sem á sér stað núna sem og áður í Palestínu. Hér er komið inn á mikilvægi Bandaríkjamanna að stíga inn í til að möguleiki sé á breytingum. Barack Obama er í lykilaðstöðu eftir aðeins fáeina daga til að stíga þetta skref, en hingað til hefur þetta heimsveldi ávallt staðið með Ísrael. - Ljósmyndin er af gamalli konu sem geymir enn lyklana að húsinu sínu sem hún var neydd til að yfirgefa um 60 árum fyrr - og hin hryllilega endurtekning á sér stað einmitt núna á þessari mínutu. Ég hef einnig verið að velta fyrir mér lyklum þessa dagana og það tveimur - hef haldið traustataki með miklu þakklæti í rósóttu húslyklana mína eftir gula lykladrauminn. Já þrátt fyrir að kreppi að á þessu skeri þá er ekki annað hægt en að horfa til himins og segja takk fyrir til dæmis það að lyklarnir manns gangi að vísu húsi sem sé á sínum stað og veiti gott og öruggt skjól.
ég er eiginlega að fríka út á þessum dögum er þó að lesa einkar áhugaverða bók þessa dagana sem gerir daginn ögn bærilegri og mikið þykir mér ómögulegt að þurfa alltaf að vera eitthvað að kaupa í matinn og setja í þvottavél þoli ekki þetta rugl en nafn mitt er rauður lofar heldur betur góðu...
ætlar þessi umheimur þetta svokallaða alþjóðasamfélag ekkert að gera í málunum? það eru nú að verða um 1000 manns sem hefur látist í Palestínu síðustu 2 vikur - og það er þá fyrir utan allt særða fólkið, búið er að sprengja handleggi og fótleggi af þúsundum - börn sem ekki eru drepin eða illa særð hafa jafnvel misst foreldra sína og þetta heldur svona áfram dag eftir dag eftir dag - hrein og bein aftaka í gangi....
mig dreymdi stórmerkilegan draum var stödd í staðleysu í rútu á ferð á leið aftur í tíman með tvo gula húslykla sem ég kannaðist ekkert við ákvað að fara út úr rútunni og kíkja í kaffi til vinar en fattaði að ég væri ekki búin að kynnast honum var komin of langt aftur í tíman vissi ekkert hvar ég ætti heima hvaða ár var hvort ég ætti börn eða ekki stóð bara á götuhorni með tvo gula lykla í lófanum
"The Palestinian death toll has risen to 815 people and more than 3,300 injured since Israel began its offensive in the Gaza Strip two weeks ago. Attacks continued on Saturday morning with aerial bombardments and Israeli forces advancing further into the outskirts of Gaza City. Eight members of one family were among the latest fatalities, killed by an Israeli tank shell in Jabaliya."
andvaka komin með flensu, bryð parkódín og les : http://english.aljazeera.net/news/middleeast/
Mynd
SAVE GAZA
Frétt af mbl.is frá því áðan: " Vörpuðu sprengjum á hús fullt af fólki Sameinuðu þjóðirnar fullyrða, að Ísraelsher hafi neytt um 110 Palestínumenn inn í hús í Zeitunhverfi í Gasaborg og síðan varpað á það sprengjum sólarhring síðar. Um 30 manns létu lífið í árásinni. Þetta sé alvarlegasta málið, sem komið hafi upp frá því Ísraelsmenn hófu hernað á Gasasvæðinu. Skrifstofa SÞ, sem sér um samræmingu á mannúðarmálum, (OCHA) hefur eftir nokkrum sjónarvottum, að ísraelskir hermenn hafi rekið um 110 íbúa út úr húsum sínum í hverfinu og skipað þeim að koma sér fyrir í einu húsi og halda sér innandyra. Um helmingur fólksins var börn. Sólarhring síðar varpaði Ísraelsher fjölda sprengja á húsið. Þetta gerðist 4. janúar. Í skýrslu OCHA segir, að þeir sem lifðu sprengingarnar af hafi gengið um 2 km vegalengd til Salah Ed Din og þaðan fluttu vegfarendur þá á sjúkrahús. Þrjú börn, það yngsta 5 mánaða, létust eftir að þau komu á sjúkrahús." Hvernig er hægt að halda því fram að báðir aðilar e
og ég læt það fylgja hér að í morgun leið mér líkt og níræðri konu nei ekki þessari sem er full af óbilandi bjartsýni og þakkar skírlífinu langlífið nei mér leið bara svona níræðri með gigt að bíða eftir að dagurinn klárist frá því hún opnar augun í upprisu dags hjálp og ég meina þetta
Mynd
ég fékk skammir: (mjög ströng í málrómi með hendur á mjöðmum): "mamma!!! þú mátt ekki vinna svona mikið. þú mátt bara vinna smá. annars verður þú svo þreytt og þá getur þú ekki pússlað með mér."
mér tókst að brenna stóra bleika mynd af marilyn monroe sem var í hvítum ramma á vegg í miðri íbúð og stuttu síðar læsti ég litlu dóttur mína inni og sjálfan mig úti tensjón sú stutta er þó þekkt fyrir einstak jafnaðargeð og fannst þetta alveg óskaplega skemmtilegur leikur sem betur fer og náðum við með miklu brasi að koma lyklinum undir útirdyrahurðina og lauma honum af kyppunni - hún er algjör snillingur ég lá á gólfinu með kertaljós þar sem rafmagnið er farið af ganginum og þar með af útidyrabjöllunni og þetta hafðist þegar ég loks gat opnað inn þá stóð skottan dansandi og kallaði með tilþrifum og útbreiddan faðminn: ó mamma mikið ertu dugleg!!! stóra yndið skokkaði út í ísbúðina eftir svaðilfarir vorar við fengum okkur því ís og heita sósu og horfðum á korní ástarræmu fyrir fallegu fjölskylduna í sviðalyktinni
ég er óþolinmóð og sígrátandi snökti yfir bruna marilyn monroe í stofunni minni bye bye baby og hágrét yfir fréttum og kastljósi verð hrædd í þessum sprengjuhávaða og finnst þetta heimskuleg iðja minnir mig á að fólk er að deyja og líka börn að deyja þetta er allt svo hryllilegt dómsdagstilfinning flæðir yfir mig út af fáránlegum andstæðum en það er gott að taka jólaskrautið niður eitt af öðru bye bye baby baby bye bye
og mér tókst ætlunarverkið - það ætti að veita mér orðu var mætt 7:31 djöfuls rugl er allt þetta líf annars
Mynd
Það eina sem íslenska þjóðin getur gert er að loka á allt viðskipta og stjórnmála samband við ísraelsku þjóðina. Það er ekki nóg að fordæma af veikum mætti. Það er lamað. Ég trúi ekki að líkt og "við" studdum innrás í Írak þá styðjum "við" einnig þjóðarmorð í Palestínu með því að vera þjóð með gjörsamlega lamaða ríkisstjórn sem er bæði ósammála og vanhæf. Ísrael hefur heimsveldi á bak við sig á meðan Palestína hefur engan styrk. Eftir kúgun í 60 ár þá hlýtur að vaxa upp hatur og blóðþyrstur andardráttur. Síðan þykist ísraelska þjóðin vera fórnarlamb í þessum átökum og eiga ekki annarra kosta völ. Það eru eintómar myndir af barnalíkum frá Gazasvæðinu. Litlir palestínskir líkamar um allt. Það er ömurlegt að liggja andvaka, gjörsamlega máttvana í landi með handa- og heilalausa stjórn. Þetta er hreint skelfilegt.
Mynd
ég hef ákveðið ýmislegt en gef að sjálfsögðu ekkert uppi hér ég hef sofið svo mikið að ég get ekki sofið meir þegar ég á að sofa meir og meir ætla að vakna fyrir klukkan 7 í fyrramálið og vera búin að koma mér inn í vinnubygginguna ekki seinna en 7:34 - gefa það upp á morgun hvernig mér lukkast planið jafnframt þarf ég að vinna um 60 klukkutíma næstu 5-6 daga fara með sjálfan mig til læknis fara með stálpuðu stúlkuna til læknis fara með litlu skottuna til læknis og jafnvel er ein aðgerð líka á planinu herregud what a week og það í sjálfum janúar þegar maður á helst ekki að gera rassgat annað en að horfa á ástarmyndir og stunda kynlíf á milli svefnrofa en ég er mjög dugleg í planleggingum og frestunarárátta mín hefur komið mér í þessa skemmtilegu stuðviku sem hefst eftir tæpar 7 klukkustundir - ég get ekki beðið ég og ástin bíðum samt pollrólegar í kúl stellingu og raulum kántrí með andardrættinum
og veistu - köttum á samband við ísraelsku þjóðina
Vertu yfir og allt um kring
og núna veit ég ekki hvort ég á að taka með mér kertaljósið, blysið eða vatnsbyssuna...
tölum ekki um viðskipti elskan tölum um landslagið og fjöldagrafir tölum um það elskan ég skal fara úr sokkunum þú getur tekið af þér bindið á sama tíma geymum alla peningana okkar á eldhúsborðinu teljum þá á morgun þegar við höfum rætt um fjöldamorð og farið úr fleiri sokkum sokkarnir heimilislausir á eldhúsgólfinu líkamarnir litlar þúfur með augu líka á eldhúsgólfinu skrítin lykt í loftinu kjöt og blóð ekkert kjöt ekkert blóð peningarnir á eldhúsborðinu bíða tölum ekkert meira lokum bara augunum og spyrjum skáldin um sjónvarpsdagskrána
Gleðilegt og fallegt nýtt splunku spánýtt ár elsku vinir....