tölum ekki um viðskipti elskan tölum um landslagið og fjöldagrafir
tölum um það elskan
ég skal fara úr sokkunum
þú getur tekið af þér bindið á sama tíma
geymum alla peningana okkar á eldhúsborðinu
teljum þá á morgun
þegar við höfum rætt um fjöldamorð og farið úr fleiri sokkum
sokkarnir heimilislausir á eldhúsgólfinu
líkamarnir litlar þúfur með augu líka á eldhúsgólfinu
skrítin lykt í loftinu
kjöt og blóð
ekkert kjöt ekkert blóð
peningarnir á eldhúsborðinu bíða
tölum ekkert meira
lokum bara augunum og spyrjum skáldin um sjónvarpsdagskrána

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal