Áhugaverð grein um þann hrylling sem á sér stað núna sem og áður í Palestínu. Hér er komið inn á mikilvægi Bandaríkjamanna að stíga inn í til að möguleiki sé á breytingum. Barack Obama er í lykilaðstöðu eftir aðeins fáeina daga til að stíga þetta skref, en hingað til hefur þetta heimsveldi ávallt staðið með Ísrael.
- Ljósmyndin er af gamalli konu sem geymir enn lyklana að húsinu sínu sem hún var neydd til að yfirgefa um 60 árum fyrr - og hin hryllilega endurtekning á sér stað einmitt núna á þessari mínutu. Ég hef einnig verið að velta fyrir mér lyklum þessa dagana og það tveimur - hef haldið traustataki með miklu þakklæti í rósóttu húslyklana mína eftir gula lykladrauminn. Já þrátt fyrir að kreppi að á þessu skeri þá er ekki annað hægt en að horfa til himins og segja takk fyrir til dæmis það að lyklarnir manns gangi að vísu húsi sem sé á sínum stað og veiti gott og öruggt skjól.

Ummæli

Bíbí West sagði…
dásamleg lyklamynd rósin mín
Fía Fender sagði…
já svo óskaplega sorglega táknræn
og gott að heyra hljóð úr vestri ljúfa

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal