mér tókst að brenna stóra bleika mynd af marilyn monroe sem var í hvítum ramma á vegg í miðri íbúð
og stuttu síðar læsti ég litlu dóttur mína inni og sjálfan mig úti
tensjón
sú stutta er þó þekkt fyrir einstak jafnaðargeð og fannst þetta alveg óskaplega skemmtilegur leikur sem betur fer
og náðum við með miklu brasi að koma lyklinum undir útirdyrahurðina og lauma honum af kyppunni - hún er algjör snillingur
ég lá á gólfinu með kertaljós þar sem rafmagnið er farið af ganginum og þar með af útidyrabjöllunni og þetta hafðist
þegar ég loks gat opnað inn þá stóð skottan dansandi og kallaði með tilþrifum og útbreiddan faðminn: ó mamma mikið ertu dugleg!!!

stóra yndið skokkaði út í ísbúðina eftir svaðilfarir vorar
við fengum okkur því ís og heita sósu og horfðum á korní ástarræmu fyrir fallegu fjölskylduna í sviðalyktinni

Ummæli

krumma sagði…
jesús kristur!!!er marlyn sködduð??? ég kem á stundinni, ekki taka neinar skyndiákvarðanir ég keeeeem
Fía Fender sagði…
já þetta er skelfilegt
snökt snökt

komdu fljóttttt
Fía Fender sagði…
já þetta er skelfilegt
snökt snökt

komdu fljóttttt
Nafnlaus sagði…
Ég kem með skyndihjálparkassann!!!

bráin

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal