Færslur

Sýnir færslur frá janúar, 2012
líkt og kok mitt sé steypt upp með þykkum tárum úr söltum sjó
Mynd
Sjá: Sick Sad World Og: KDL
Mamma, heilinn á mér framleiðir ekki nógu mikið af hamingju og þess vegna kemur þunglyndið stundum eins og stjarnan Melankólía og brotlendir á heiminum mínum. Að vaða í þykkum ullarþráðum. Að vera ekki hrædd við það sem kemur að utan heldur einmitt við það sem kemur að innan. Ef ég væri stjarna á himnum myndi ég vera fjólublá. Ef ég væri góð í að elska myndi ég elska þig. Ef dagurinn væri úr vatni myndi ég ekki drukkna. Ég myndi synda dýpra, leggjast á botninn og anda með tálknum sem ég fékk að gjöf. "She dwells with Beauty - Beauty that must die; And Joy, whose hand is ever at his lips" (John Keats)

CARIBOU - Sun [OFFICIAL]

Mynd
hún kemur hún kemur
Áramótaheitið var að búa til langan lista af löngunum og ráð til að verða við þeim með einhverjum klækjum og karmanu sem umvefur mig. Einmitt væri ráð að reyna að hafa góð áhrif á karmað. En summsé. Ég á nú ekki í erfiðleikum með listana blessaða. Í þetta sinn varð listinn að vera konkret. Ekkert kjaftæði um að verða betri manneskja eða hugsa jákvætt. My big arse. Bara þú veist lesa þessa og hina bókina. Kaupa nærbuxur og sódastreamtæki. Skrifa eitt ljóð á viku. Raka á mér lappirnar. Fara í klippingu. Svona stöff sem maður barasta þarf kannski að gera á árinu. Drekka vatn á hverjum degi. Og fleira sem kemur þér ekkert, lesandi góður, við. Ég lærði einu sinni að gott væri að gera lista yfir allt sem maður er viss um maður gerir, muni gera. Vakna, klæða sig, bursta tennurnar, tala við börnin sín, drekka kaffi og svo framvegis. Sigur-listi. Ekki to-do listi heldur Win-listi. Ég fílaði áhrifin af þeim gjörningi verð ég að segja. Mér fannst ég alltaf í plús og ótrúlega dugleg, klár, falleg
Mynd
Mig langar nú svoldið í þessa bók hans Bert Stern. Marilyn Monroe: The Complete Last Sitting. Ó jájá.

Megi fegurðin ríkja

Mynd
Gleðilegt ár mín kæru!