hausverkur í viku
magnað
ætli ég þurfi kannski að fara að skreppa til hennar kollu grasalæknis
þýðir ekki að bryðja þetta ágæta parkódín endalaust
né halda sig í myrkrinu á þessum fallega árstíma
hvimleitur skratti og valdur að bölsótt og barmafullum skálum súrleikans
eldaði annars ágætan pottrétt rétt í þessu með sætum kartöflum og rjómaosti
og í gærkveldi bakaði ég massa dökka súkkulaðiköku
mmmm...

Ummæli

krumma sagði…
ef ég hefði vængi, flygi ég til þín, inn um svalahurðina og settist á eldhúsborðið, leggði enni við enni og ræki þennan ansvítans hausverk burt með galdrabirtunni minni og kærleiksseið, við myndum borða súkkulaðikökuna þína og drekka ískalda mjólk og ég myndi spila hann rufus fyrir þig þar til þú brystir í söng með honum "...oh how I feel like a beautiful child, a beautiful child again..."
Fía Fender sagði…
lovjútú fallega þú

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal