jú þá eru kosningar á morgun...

síðast liðin fjögur ár hef ég staðið við slagarana burstum tennur og skiptum reglulega um nærbuxur. ég hef gert þetta tvennt reglulega og þið getið treyst því að ég muni standa við þau stóru orðin. ég mun jafnframt halda áfram að anda djúpt og þróa sér í lagi öndun niður í þarma og mun koma þessu að í þrepum á komandi kjörtímabili. 45 % karlmanna mun pissa sitjandi og allar biðraðir á almenningsklósett verða úr sögunni. konur munu smám saman hætta að kasta af sér vatni og það á landsvísu. úrgangsefnin munu skila sér um öndun og þar af leiðandi vera um umtalsverðan klóaksparnað að ræða. auk þessa þá boða ég jafnframt ódauðleika og þið getið treyst því að hér er staðið við stóru orðin því hér er byggt á traustum holdlegum grunni stöðugleikans. það verða steypuvélar á hverju götuhorni og sér í lagi á grænum og góðum afmörkuðum stöðum, sem munu steypa hugmyndir í form. hafið því engar áhyggjur því stöðugur ódauðlegur stöðugleikinn mun ríkja og sífelld tannburstun að ekki sé minnst á hreinar nærbuxur með reglulegu og stigmagnandi millibili.

Ummæli

krumma sagði…
fíu á þing, fíu sem forsætisráðherra, verða ekki allir allsberir í þinni stjórn?
Fía Fender sagði…
jújú með tannbursta í rassinum
múhaaa

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal