já elskan mín ég sá svo mikið af fallegum konum
svo óskaplega fallegum og geislandi konum
allar þessar sætu stelpur
ég kyssti þær allar og faðmaði eitt augnatak á sviði í myrku leikhúsi
og ég borðaði mikið af kolvetni sem er gott fyrir vömb og heilabörk
og drakk örlítið tekíla en ekki of mikið
gekk um í sólarlaginu með sólgleraugu
og já. drakk kaffi og málaði eitt stykki eldhús.
faðmaði fallega faðma en varasamt er að taka mark á orðum því þau skilja þig ekki og faðma þig ekki heldur byggja þau stóra og gráa kastala með djúpum sýkjum og grænum þörungum allt um kring alltumvefjandi vá
mjá. ég er svoldið þreytt núna
ástin og málningarvinnan er svo uppgefandi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal