Ég er með fjandans seiðing í hausnum mínum. Hausinn er einhvern vegin allt of þungur fyrir háls og herðar. Hef verið að ramba inn á klámmyndir á ýmsum opinberum og óopinberum stöðum nýlega. Alveg óvart sko. Jamm. Og lá í mínum ofurþægilega og ljóta sófa með þunga hausinn í gærkveldi og leið eins og það væri nýbúið að gelda mig. Ég starði fram fyrir mig og rúv bauð upp á dýralífsmynd um nefapa sem var heldur betur klámfengin. Góð fylling fyrir gelda hausa. Sannkölluð fjölskyldu- stemning. Síðan fékk ég martröð og já talandi um klám. Ég óökufær konan ók um götur þessa þorps og á hverju einasta umferðarskilti voru myndir af þeim Geir og Jóni með tryllingslegt stöðugleika glott sitt.

Ég á mér tröð

maaaaar

tröð

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal