barnarúm, eldhúsborð, ísskápur og gæra á einu bretti
en ég er að leka niður
ótrúlega svakalega fáránlega þreytt
vonandi húkir þvottavélin aðeins lengur
því þá er þetta alveg eðal allt saman
þegar þetta flutnings, málningar, hreinsunar, endurfæðingarbrölt verður afstaðið þá leggst ég í heitt baðkarið mitt
og sötra kampavín

Ummæli

Bíbí West sagði…
Elskan mín, ég sakna þín. Svo þægilega einmanalegt í Vestrinu. Hóteljobbið rokkar. Fjöllin rokka. Þú rokkar. Fjöllin eru einn allsherjar föðurfaðmur og ég læt mig fljóta, þyngdarlaust í faðmi formæðra-og feðra. Hvíldi mig í afarúmi. Þar fæddist hann og þar dó lamma. Ég og hin sveitastelpan sem ætlar að koma um helgina munum taka þátt í kampavínsherlegheitum og skála fyrir þér og skottunum á nýrri Báru!
Bíbí West sagði…
er nær þér í fullu tungli sko...
Fía Fender sagði…
ó þú vestanmær ávallt ert mér nær og allar þínar stóru tær. já það er fullt nú og fleytir af stað endurfæðingunni þú veist þú veist lúvílúv.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal