gjörningur spencer tuniks í dag í mexíkó. um 20.000 manns tóku þátt í allri sinni nekt. hjarðeðli okkar og einstaklingshyggja virðist fljóta hér saman í holdlegu mynstri. líkaminn hefur kuldalegt aðdráttarafl í öllum fjöldanum. holdlegt blæti leiðir okkur nær og um leið út úr okkar eigin líkama og inn í framandi landslag - en um leið kunnuglegt. það er hægt að skrá sig á netinu í gjörning hjá spencer tunick sem verður í amsterdam núna í vor. 7 húðlita möguleikar í boði.

Ummæli

krumma sagði…
ég kemst ekki og svo hef ég aldrei látið litgreina mig
Fía Fender sagði…
æhh dem. annars greinir mar sig bara sjálfur sko.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal