(tina west: luck be a lady)

ég hef ákveðið að stofna bómullarverksmiðju. ég tel mikla þörf fyrir verksmiðju af því tagi. hef fundið ljóta skemmu á jaðrinum og undir henni býr dáið fólk. þetta er kjörið til að byggja á. rótlausar rætur og rústir. til að byrja með er einungis um leynifélag að ræða. eins og gefur að skilja. ef um raunverulega bómullarverksmiðju er að ræða þá þarf hún á öryggi og ró að halda. ég bið ykkur því vinsamlegast að halda ró ykkar. ég mun halda ykkur upplýstum um framvindu verksins.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal