með eyðilegginguna í farteskinu sigli ég af stað mót rísandi sól
öskubakkinn segir mér aldrei allan sannleikann
staðhættir eru nokkuð ónákvæmir
en það vill svo skemmtilega til að þú færð að fljóta með
og úr aungkrókum og handarkrikum þyrlast gamall svartur sandur
fjaran hefur boðið okkur velkomin
á boðstólnum verður eitt og annað mikilvægt sem grafa má í jörðu
skeldýrin horfa á full öfundar

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal