vangaveltur í baði:

mútta: hvað gerir maður með eyrunum?

skotta: maðrr klippir.

m: og hvað gerir þú með augunum?

s: ég loka augunum.

m: hvað gerir nefið?

s: finnur kúk.

m: jæja. en ertu ástin mín?

s: nei.

m: ertu ekki ástin mín???

s: neibb. ég er jólasveinn.

m: hvað ertu gamall jólasveinn?

s: ég er keggjára jólasveinn. hva ert þú gamall jólasveinn?

m: ég er mjög gamall jólasveinn.

s: þú mátt ekki koma með.

m: eigum við að koma upp úr?

s: nei. allir jólasveinar eiga heima hjá mömmu sinni og pabba sinn.

m: og hvar átt þú heima?

s: ég á heima út í sjó.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal