ég hlusta á tom waits. ég borða hrísköku. ég drekk kaffi. ég set í þvottvél. ég þurrka hor úr nösum. ég les fréttablaðið. ég útbý dagskrá. ég skrifa tölvupóst. ég fer út í búð. ég les um einar áskel og barbapabba. þurrka hor úr nös. ég dreg andann mjög oft. en mjög rólega. ég rúlla út bleikri jógadýnu. dúlla mér og dúlla mér og anda mikið og djúpt og rólega. hlusta áfram á tom waits. legg tarot. hugsa um daginn. sé gröfu og hugsa um silfurlitaðar kistur og melankólískan fjallahring. umvefjandi. ég ætla að setja muddy waters á og skoða leigulistann. ég já. ég og þú.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal