en silfurskotturnar hafa sungið fyrir mig...
syngur megas fyrir mig bara mig

og það er jú annsi margt sem maður þarf að varast í þessari tilveru
svo dregur maður helvítis fortíðina inn í nútíðina eins og hlekki á eftir sér
hún loðir við mann í allra kvikinda líki
ég held að dauðhreinsun geti verið lausn við fortíðarfári

tilbúin í eldskírn

já segir hún jájájá
taktu mig alla
hamflettu mig
og söngurinn skreið undir húð og nærðist á sálarfrumum fáein augnablik
svo varð allt hljótt
og fögnuður fyllti æðar

"og silfurskotturnar sungu fyrir mig
þær sungu bæði nótt og dag
og þær sungu fyrir aðeins einan mig
sitt indælasta alfegursta lag"

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal