sail on silver girl
sail on by

ég er með svona marblett
voðalega aum í þessum marblett
hann er einhvers staðar inn í mér
kannski í blóðinu
eða þarna já í kjarnanum sem heldur öllu saman
límingarnar marðar
solar plexus fer á grúfu
dregst saman
eins og hjá agli skalla
og honum leið svo vel í solar plexus við að drepa drepa drepa
en ég ætla ekki að drepa núna
nei
ég hef önnur ráð undir hverju mörðu rifi

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal