þetta er alveg dásamlegur dagur. nýt þessara ofurrólegheita í botn. væflast þetta um. klóra sér í naflanum og eyrunum og svona. laga döðlubrauð. tala við yndislega vini. og finna blóðdropana falla á ennið mitt, einn af öðrum, er ég mæni upp á krossinn. svo ætla ég bara í strigaskóna mína og bruna upp í sveit með heitt döðlubrauð og rauðvínsflösku. draumur í dós félagi kær.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal