Elskulega alvald, sendu mér nú eitthvað öfgafullt og bitastætt. Eitthvað sem krafsar í og bítur, eitthvað sem vekur, eitthvað sem skekur, ekki þessi endalausu réttarhöld...
hvar eru brjáluðu hjartalokurnar? blæðandi morgunsárin? já þessi djöfuls ólga öll? ég bara spyr. kannski leynist þetta allt milli lúsugra veggja, undir þili einhvers staðar í í í þessu andskotans bili....kafka vill kannski merja sig í gegnum þetta freðna haf í okkur
Ummæli