það lekur af mér letin á þessum fagra degi. sveiattan.
verkefni helgarinnar: flæðandi uppvask, flæðandi þvottur, flæðandi barnaherbergi.
og þess vegna er ég úthrópuð á götum úti fyrir sköpun og mjólkurframleiðslu. rennur hreinlega lækurinn á eftir mér. og við hvert fótmál lepja kettlingar og hvolpar rennsli kirtlanna.

sækja hjólið upp í skóla.
skila vampírum á bókasafnið.
fá sér kaffi: úps engin kort og engin regnkápa.

æhi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal