"já er hversdagsleikinn að drepa þig?"

æ nei. hann er alveg ljúfur á sinn hátt. en á þessum ágæta rigningar mánudegi þá er hann reyndar nokkuð nálægur. áferð hans er kaldranalega mjúk. litla stelpan mín lagðist bara til svefns þegar hún kom úr leikskólanum. ég kveikti á kertum og setti í vél. uppvaskið bíður eftir þérmérþérmér. rennurnar eru stíflaðar á húsinu og ég snerti þig með hljóðunum sem myndast er fossast úr þakskegginu. bráðum kemur stúlkan með stóru vængina fljúgandi að vestan heim í kotið og það er alltaf gott.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal