mjá við skotturnar höfum verið að vasast í að gera hallarkofann okkar fínann, erum alltaf líkt og nýfluttar hingað inn en nú er þetta að verða fínt hjá okkur og allar kisur hverfisins eru farnar að venja komu sína til okkar. hlustum á radiohead við morgunverðarborðið og sú litla fílar taðreyktan silung og parmesanost með sultubrauði og sódavatni. kaffi fyrir mig kaffi takk. það er sól úti og skipulag á kaosinu í kotinu.



kisulórurnar mínar mjá mjá mjá
kúra sig saman
einstaka sinnum

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal