hæ elskan
nei sorrí ég kemst bara ekki út úr húsi
er orðin svo feit af sumrinu
og komin með þvagleka af trampólíninu
og hraða meltingu af rifsberunum úr garðinum
síðan er kynhvötin alveg að sofna úr rið- og ráðaleysi
elska þig samt
þín þráhyggja sem kann að byggja hús á sandi úr túnfíflahjónabandi

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal