herra læknir: il doctore já sæll þetta er hinn il doctore, já hún stynur bara af verkjum
madonna: do you know what it feels like for a girl in this world...
hjálpi mér. hélt ég væri að fara að fæða af helluðu hríðarverkjakasti. læknarnir á læknastofunni stumruðu yfir mér. lyftu mér á bekkinn og keyptu kók með parkóíbóparkóforte. vinur minn kær kom til mín að hjálpa litlu stynjandi mér. jæja, þá er ég búin að væla og stynja hér og er öll önnur. kaþarsis og kók með 8-10 í útvíkkun. ég er ekki ólétt. en ég stend í þeirri meiningu að ég sé kona í heimi hér. dóttir mín bendir mér mjög oft á að þetta og hitt sé líka fyrir konur og þetta og hitt sé líka fyrir mömmur. eins og trönuberjasafinn við morgunverðarborðið, hann var líka fyrir konur. og bækurnar á bókasafninu er líka fyrir mömmur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal