má ég benda ykkur á elskurnar mínar
þið fallegu hræður sem hingað villast inn
að nú er nýtt tungl

í því tilefni keypti ég/við falleg blóm
fyrir 999 krónur
þessi hvítu og bleiku fallegu blóm
sem ekki vildu mjólk að drekka
né plokkara í kvölmat
þau næra á sig tærnar
í saltsykruðu ökklabaði
og eru mjög munúðarfull að sjá
ég er viss um að þau væru til í
að deyja í samförum
eins og einn unglingspiltur
sem ég hitti í dag
hann var orðinn háður
smokkalykt
gat ekki hugsað um neitt annað en
gúmmí og kynlíf
anginn sá

en ég hugsa bara um
blóm og nýtt tungl

samt var mér sagt í dag frá því hvað ástin væri um
ég held hún hafi verið um sjeníver og hnetusmjör

en ég sný mér að nýjum tunglum
og ilmandi blómum í baði

vertu aðeins lengur í hættulega
hálsakotinu mínu
ástin

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal