litli bróðir minn á afmæli í dag
hann er miklu stærri en ég
og yfirleitt er nú haldið nú orðið
að ég sé litla systirin
en hann er og verður alltaf
litli bróðir minn
líka á elliheimilinu
það er nú gaman
en hann er veikur litla greyið
til lukku fallegi strákur

stóra stelpan að hlusta á
destiny´s child
og litla stelpan með
barbapabbi sönglandi eitthvað á dönsku
kom nu her og ser hvad der sker
barbapabbamamma
ég er úrvinda
eftir daginn

það tekur á að vera manneskja
og því keypti ég mér krem og lakkrís
í apótekinu

ég trúi á upprisu
lakkrís, krem og upprisu
og auðvitað líka á fegurðina
en ekki ástina
kannski á göngutúra og kaffi samt
jújú ég trúi alveg á ástina
en meira samt á húðina og augun

einmitt

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal