þú hefðir átt að sigla til baka með áttavita
eða reipi, uppblásinn krókódíl, vatnshelt teppi, rúgbrauð með osti kannski, útvarpstæki sem gæti spilað á harmonikkuna mína, og olíulampann sem ég gaf þér
það er ljótt að koma ferðafélaganum ekki í land og skilja einungis hverfult mánaskin eftir með marvaðatroðningi þegar skeljar og hrúður myndast við ysta lag

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal