við Rósa bardagafiskur erum hér einar heima saman að hlusta á blökkumannablús
og að fagna í kaffi og blóðormum
ég er í raun hrærð eftir þessa kosninganótt
fékk mig ekki í háttinn fyrr en að verða hálf sex eftir ræðuna hans Obama
þetta hreyfir við mér á óvæntan hátt -
söguleg stund eins og marg hefur verið sagt - já vissulega sögulegir tilfinningalegir tímar
jæja - en best að drífa sig samt í vinnuna þó mig langi að dansa í Kenya
Rósa mín dansar uggunum sínum í bleikhvergilandi

Ummæli

krumma sagði…
óhó já ég er sko últra skotin í honum obama, maður kemst alveg við þegar maðurinn talar
Fía Fender sagði…
já mér líður barasta eins og heimurinn sé betri

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal