Mæðgur fengu sér sopa á Mokka fyrir mótmæli nokkur og stúlkan segir hátt og snjallt:

Mamma hvort pissaðirðu mikið eða lítið?

Móðirin: Tjah ég held ég hafi pissað bara nokkuð mikið.

Dóttirin: Þú veist það ekki.

Móðirin: Heldurðu að ég hafi bara pissað lítið?

Dóttirin: Því miður. (en þetta ku vera nokkuð móðins svar og einkar vinsælt hjá 4 ára dömu)

Eftir þessar innihaldsríku samræður var síðustu kakódropunum skellt í sig og arkað af festu niður á Austurvöll.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal