sauma upp í mig tunguna og festi augun betur við augnbotna
skrúfa upp hendurnar og lími lungun á sinn stað en fæturnir hins vegar fóru ekkert
drösluðust bara í húðinni með perlur á þráðum
krókódílaskinn á iljunum
hárið er að vaxa og neglurnar líka
horið vex í takt við vindinn
djöfuls læti í þér
drepa drepa drepa
segir lítil kónguló í vélinda
drepa drepa drepa
en ég rétt náði að skrúfa of langa löngutöng upp á sin og snara henni niður í kok
ofan í vélinda
og merja kvikindið þar
undir nögl

núna hreyfir hún bara eitt augnhár í naglaskít og segir:
drrrrrr

vísindafóður

Ummæli

Hel sagði…
komin á kaf í súrrealisman, bólabólakaf
Fía Fender sagði…
svamla í sýrunum

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal