þetta eru alveg dæmalaust góðir dagar
mæti dögunum með æðruleysi og von í hjarta
afmælisdagurinn í gær varð óvænt stórskemmtilegur með dásamlegu fólki
súpa, salat, súkkulaði, kampavín og kærleikur allan liðlangan daginn
blóm og fegurð og skoppandi börn á öllum aldri
óskipulagðar veislur eru þrælfínar
takk takk takk
fékk svo mikið af kossum og knúsum og blómum og kærleika
og símhringingum og sms-um og tölvubréfum að ég er bara klökk
maður er víst hreint ekki einn í þessari tilveru
allt umvefjandi ástin vaggar mér barasta eins og kornabarni í móðurfaðmi
síðan enduðum við mæðgur á að horfa á pride and predjudice

"mamma hún er í uppnámi eftir að hann tjáði henni ást sína
ég væri það líka"

Ummæli

Hel sagði…
ég afturámóti þoli ekki óvæntar afmælsiveislur, því mér er jú eðli málsins samkvæmt ekki boðið í þær.

svo þoli ég ekki óvæntar gestakomur sjálf.

like mother like son anyone??
Fía Fender sagði…
say no more

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal