allt under barbacontról

hvað varð um hana
þessa stelpu þarna
þú veist hverja ég á við
ég veit reyndar ekkert hvort ég sakni hennar
alltaf að púkast eitthvað
en hún er summsé horfin blessunin
frétti síðast af henni með kisur og hálfa sjerríflösku
sat þarna í sófanum í barbamömmubúning og var að spá í það af hverju hún hefði aldrei lært að prjóna

en reyndar fundust lopahnykklarnir um allt dansgólfið eftir að hún sturlaðist aftur
þú veist
missti stjórn

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal