annars er þetta dagur sem ég umfaðma netið já og öll önnur net sem maður er flæktur í
og á einu skriferínu fiskaði ég svo falleg orð um endurnýjun. ætla ekkert að ræna henni en þannig líður mér einmitt.
að byrja nýtt líf. alltaf að byrja nýtt líf þó enginn taki auðvitað eftir því. jæjjjja....þarna rændi ég því samt. set upp leppinn.
hljóðlát endurnýjun af sjálfum sér í kynnum við þessa manneskju sem flækist með mér, í mér og utan um mig alla. slík endurnýjun er alltaf að eiga sér stað og þegar fundurinn verður þá langar manni nú bara að skála í kampavíni eins og fólk gerir á öðru skriferíi. annars þá horfði ég á júró í gær og spáði öllum inn sem voru inni neeeeema Póllandi. hafði reiknað með Írlandi frekar.

á morgun byrja ég að vinna. aftur.
og á morgun þyrfti að vera búið að dúndra bókum í kassa.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal