það er að hellast óþverri í líkamann. borðaði greinilega salt í gær en núna er hausinn svona þungur og það er erfitt að munda andlitið. en ég brosi bara mjög rólega og loka augunum hægt. þetta verður parkódínleginn 1. maí. samt líður mér eins og fordekraðri skepnu á þessum ágætis tillidegi verkalýðsbaráttu. fyllist skömm. en hey, bara saltfyllt kvefsnót að syrgja vetur í sinni því þetta er flottur dagur. heyriði það og til hamingju með baráttuna í brjóstunum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal