Mer er i mun

Mig langar í "mótorhjólastígvél". Helst strax í dag. Í dag ég vona´nn komi kagganum í lagi í dag að....neinei. Bara vil svona stígvél og veit ekki hvar ég finn þau því kannski er ég ekkert voðalega mikil mótorhjólagella. En boots kona jájájá. Hvar Elías Mar? Og eitt fallegt hér eftir hann:

Mér er í mun að vita
hvort einnig þið
hafið komizt að raun um það
þrátt fyrir allt

hversu jörðin er fögur
hljómur tungunnar nýr
haustið jafnfagurt vori
líf og dauði í sátt

þegar maður elskar.

Elías Mar (1954)

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal