þessi semi-insomnia leitar á mig
undir pilsfald og klórar í mig
en ég verð bara eitthvað skelkuð og spyr: hvað viltu núna elskan? af hverju ertu svona þögull?
og það heyrist ekki múkk í nóttinni
hryglir bara í slitróttum andardrætti hennar
svo ég þvæ augun mín í dreggjunum
og bíð alveg róleg
næstum svöl
bíð þarna á stoppustöðinni bara eftir að hann pikki mig upp í svefn

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal