fyrir utan það að sitja hér heima hjá mér við kertaljós með purple rain á þá er ég einnig að hakka í mig lucky charms
jájá
og stóra skottan er fyrir vestan og
litlu skottunni hlakkar voðalega mikið til að verða stór og fá brjóst og þá ætlar hún að verða mamma og fara í stóra skó og hún segir: veistu hvað! fyrir framan hverja einustu setningu.

skotta: veistu hvað mamma ertu að hugsa um eitthvað?

mamma: ég er að hugsa um sólina.

skotta: veistu hvað sólin er ekki úti.

mamma: en ert þú að hugsa um eitthvað?

skotta: veistu hvað ég er að hugsa um nóttina.
----
jamm, og í dag er brúðkaupsafmæli foreldra minna. 42 ára brúðkaupsafmæli hjá þeim skinnunum. dugnaður jájá.
----
litlu síðar:

veistu hvað ég er að hugsa um nóttina, sólina og eyrnalokka.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal