Hugmyndir gærdagsins skolast til í skólpi næturinnar. Undir fínlegu yfirborðinu er brim og selta sleikir taugaþræði. Öldugangur og bömmer út af engu sem er. Dásamlegur matur þessa helgina. Kjötsúpuheimboð á föstudag og fimm rétta kræsingar Við Tjörnina á laugardag. Tók léttan dans við matarborðið undir ljúfum tónum Vilhjálms og Ellýar.

Stundum er svo erfitt að sleppa takinu á vonleysinu þrátt fyrir vini með flæðandi ást, kræsingar, dans og dill. Já stundum heldur það fast í mig. En ég skal sleppa þér þú sem klístrast við mig með dreggjum ára.

Ég á kók í ísskápnum. Og sjórinn er skammt undan. Huggun harmi gegn, leysist upp í líkamlegri útgufun.

Hættu þessu kona. Taktu penisillin og sofðu betur. Vertu vær.
Vertu vær mín kær.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal