Það var eitthvað erfitt að vakna í morgun. Enn erfiðara að koma sér af stað. Og óþolandi að hjóla þessa leið í snjóflygsum maímánaðar. Þoli ekki að vera að hjóla í pilsi og roki og með hlustaverk fyrir eyrum. Þoli það ekki. En af viðburðum helgar. Hm....jájá það var ýmsilegt gert. Ljóðabókabúðin er falleg og sniðug og þuluskottan dansaði við nikkuna. 74 ára gömul Makeba var sjarmerandi en tónlistin orðin annsi útþynntur pakki fyrir listhátíðinga. En rödd hennar mögnuð. Angelite - búlgarski kórinn var dásamlegur. Líkaminn er svo magnað hljóðfæri. Og þær auðmjúkar systurnar. Sannkallað görlpáver. Æhh jájá... ég er þreytt og og og og og...
Bækur á meðan ég hverf
Nú tók ég upp á því að skrásetja eitt og annað frá október 2023 þegar ég setti búslóðina í geymslu og fór á vetrarflakk. Þar á meðal skrásetti ég hvaða bækur ég væri að lesa og/eða hlusta á. Les allt í bland og margar bækur á sama tíma, kláraði þær ekki allar en samt flestar. Mjög lengi með sumar og eins og elding með aðrar, eins og gengur. Ein og ein er ég að lesa aftur, og jafnvel aftur og aftur. Samt frekar sjaldgæft. Er enn að lesa sumar. Þetta færir mér einhverja undarlega ró, yfirsýn, landslag sem fer í gegnum mig. Tek upp kíkinn og sé bátinn færast framhjá og hverfa inn í mistrið. Mér finnst allt vera að hverfa, aðallega ég sjálf. Kassinn með jólaskrautinu er til dæmis horfinn. Jólakúlurnar frá ömmu og afa og nostalgían. Gufaði bara upp í flutningum og ákvað þar með að sinn tími væri liðinn. Með skrásetningar áráttu skil ég eftir mig spor. Lestrarspor. Bý til járnbrautarteina í gegnum tímann á meðan ég skrifa, hverf, skrifa, hverf, les, hverf, les, er horfin til allrar hami...
Ummæli