það er alveg merkilegt með framsóknarflokkinn. enginn kýs hann. allir gera grín að honum. það er mjög skýrt um allt land að fólk er óánægt með hann. þetta var afleit kosning fyrir hann sama hvernig á það er litið og jafn vel þó blessaði tilbúningurinn eini hafi mjakast þarna inn. nei þrátt fyrir það að þá er framsóknarflokkurinn alltaf í stjórn. hvur andskotinn er þetta. vilji fólks er bara hundsaður. við ætlum bara að nýta okkur öll tækifæri sama hvað hver segir. usss og sveiattan, manni langar að flytja úr þessu ljóta virkjanalandi.fyrir hvað stendur framsóknarflokkurinn annað en gamla ímynd fjölskylduhefða og tækifærisskap.
Bækur á meðan ég hverf
Nú tók ég upp á því að skrásetja eitt og annað frá október 2023 þegar ég setti búslóðina í geymslu og fór á vetrarflakk. Þar á meðal skrásetti ég hvaða bækur ég væri að lesa og/eða hlusta á. Les allt í bland og margar bækur á sama tíma, kláraði þær ekki allar en samt flestar. Mjög lengi með sumar og eins og elding með aðrar, eins og gengur. Ein og ein er ég að lesa aftur, og jafnvel aftur og aftur. Samt frekar sjaldgæft. Er enn að lesa sumar. Þetta færir mér einhverja undarlega ró, yfirsýn, landslag sem fer í gegnum mig. Tek upp kíkinn og sé bátinn færast framhjá og hverfa inn í mistrið. Mér finnst allt vera að hverfa, aðallega ég sjálf. Kassinn með jólaskrautinu er til dæmis horfinn. Jólakúlurnar frá ömmu og afa og nostalgían. Gufaði bara upp í flutningum og ákvað þar með að sinn tími væri liðinn. Með skrásetningar áráttu skil ég eftir mig spor. Lestrarspor. Bý til járnbrautarteina í gegnum tímann á meðan ég skrifa, hverf, skrifa, hverf, les, hverf, les, er horfin til allrar hami...
Ummæli