svo veit ég ekkert meir. en það er samt allt í lagi. ég segi það við mig: já litla vera það er allt í lagi og stlappaðu bara af góða. slaaaaakaaaa haaa slaka. kjálkinn er ekki brotinn. en tannlæknirinn hélt að hann hefði brotið hann. og ég hélt að að ég hefði brotnað upp í höfðinu en svo bara er ég óbrjótanleg marmarastytta. eða þannig. ég er að hlusta á coco rosie. sá þær í gær. ógisslega töff skvísur. ég ætla að vera svona töffari. jeeeeræt. en samt. hlakka til að sjá þær skemmtilegar í kvöld. joanna var flott í gær. sögukona með víbrandi flotta rödd á hörpunni sinni í sætum fötum og með sítt hár. smog líka flotta röddina sína og lögin sín fínu en samt ekki kraftur í performansinum hans. spilaði of lengi þó góður sé. og slowblow með fallegt útpælt stutt konsentrerað prógramm. jájájá. bæjó.
Bækur á meðan ég hverf
Nú tók ég upp á því að skrásetja eitt og annað frá október 2023 þegar ég setti búslóðina í geymslu og fór á vetrarflakk. Þar á meðal skrásetti ég hvaða bækur ég væri að lesa og/eða hlusta á. Les allt í bland og margar bækur á sama tíma, kláraði þær ekki allar en samt flestar. Mjög lengi með sumar og eins og elding með aðrar, eins og gengur. Ein og ein er ég að lesa aftur, og jafnvel aftur og aftur. Samt frekar sjaldgæft. Er enn að lesa sumar. Þetta færir mér einhverja undarlega ró, yfirsýn, landslag sem fer í gegnum mig. Tek upp kíkinn og sé bátinn færast framhjá og hverfa inn í mistrið. Mér finnst allt vera að hverfa, aðallega ég sjálf. Kassinn með jólaskrautinu er til dæmis horfinn. Jólakúlurnar frá ömmu og afa og nostalgían. Gufaði bara upp í flutningum og ákvað þar með að sinn tími væri liðinn. Með skrásetningar áráttu skil ég eftir mig spor. Lestrarspor. Bý til járnbrautarteina í gegnum tímann á meðan ég skrifa, hverf, skrifa, hverf, les, hverf, les, er horfin til allrar hami...
Ummæli