uppáhaldið mitt um þessar mundir - algjört fíunammi:

1 pera
1/2 banani
1/2 grænt epli
slatti af frosnum berjum (krækiberjum, bláberjum, jarðaberjum - það sem til er)
4-6 saxaðar döðlur
slatti af hrísmjólk

allt saxað og sett í blandara og blandað mjög vel saman - gott að láta það hringsnúast svoldið vel
og vessgú beint í glösin - úr þessu færðu ca. tvö væn glös
ath. að ef ekki eru notuð frosin ber þá er góð hugmynd að setja nokkra klaka í lokasnúning

mmmm
svalar hungri, þorsta og öðrum nautnum á skotstund!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal