í dag langar mig að horfa á dvd heima hjá mér.margar margar margar. hverja á fætur á annarri. borða nýju blá- og krækiberin mín og sulta svoldið og safta. en í staðin er í jú stödd í minni ágætu vinnu. hundleiðist hér í dag en læt mig hafa það.
jógað fer að byrja. held ég drífi mig af stað. þetta er það eina sem hefur virkað á mig og fengið mig til að koma aftur og aftur og aftur í heil tvö ár. ótrúlegt. en síðan læddist helvítis doðinn að mér fyrir tæpu ári síðan og ég hætti skyndilega öllu. hætti að fara í jóga. hætti að hjóla. hætti að kíkja á strákana (sem er reyndar í góðu lagi - þó merki um ládeyðu). jæja. allt þetta leiðir til enn meiri doða. hmmm...

þá er að taka 73 eða eitthvað. byrja aftur. og aftur. annað líf - betra líf.

hringt úr skólanum og stóra skottan veik. sofnuð í sófa skólastjórans. þetta er nú fínn skóli sem hún var að byrja í. allir svo alúðlegir og skilningsríkir.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal