ég verð svo tímalaus í veikindum
sef í einhverja klukkutíma og vaki eitthvað sef aftur vaki sef
móki fer á fætur aftur að móka hita te glápi á dvd
sofna vakna kúri sef

æh þetta er ágætt
september já og höfuðið á mér er svo þungt
rétt tollir á líkamanum
langar að rúlla því niður í holu sem er full af undarlegum jurtum

Ummæli

krumma sagði…
hurðu elskan þú þarft að kaupa þér nýja heilsu á ebay, þessi er alveg búin með batteríin, knús

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal