jæja elskurnar. þetta kemur allt.

það er mjög góð æfing fyrir fjölskyldumeðlimi að halda fund þar sem allir verða að segja eitthvað fallegt um sjálfan sig og eitthvað fallegt um hina. og allir verða að meina það sem þeir segja. þetta var alveg stórskemmtilegt. 3 ára, 12 ára og 32 ára stelpur. við erum með falleg augu. fallegt hár. góð mamma og góðar systur. góðir knúsarar. góðar að skrifa sögur. og svo erum við ótrúlega klárar og heppnar og okkur finnst margt svo skemmtilegt. sú yngsta í hópnum kom mjög á óvart í þessum ágæta leik og var alveg ótrúlega sleip í að hrósa einlæglega sjálfum sér og öðrum fyrir að vera til. miðstelpan var mjög góð í að tjá fallegar tilfinningar um aðra en þótti erfiðara að hrósa sjálfum sér. elsta stelpan breyttist í nostalgíu og gleymdi í smá stund vetri, myrkri, hálku og einhverju þarna úti sem var að draga hana niður í dæmalaust neikvæðni stuð. já þetta kemur allt. og svo er bara að muna að vera góður við svipuna þarna inni og þá breytist hún í fallega slöngu til að leika sér við. eitthvað varð þetta kinkí alveg óvart. ég er svo leiðinlega laus við að vera kinkí þessa dagana. bara no sex in the air. veit ekki hvað gerðist. laus við óveðrið. en lognmollan var þó ekki meiningin. og þessa dagana er ég lélegur bókmenntafrrrrrr en inní mér er ég sko mjög góður og leik mér við ímynduð typpi og píkur í bland við hurðahúna og lyklakippur. góða nótt. ég skal muna að fara í sturtu þegar ég vakna og bera á mig krem svo. krem er gott. frábært beibí.

Ummæli

Hljómar fallega en gæti orðið dálítið þrúgandi langdregið í átta systkina hópi með mökum og börnum.
Fía Fender sagði…
ég þarf víst ekki að hafa miklar áhyggjur af því. þó veit maður aldrei...amma eignaðist 10

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal